Sýslumaðurinn á Suðurlandi hefur tekið tilboði Fögrusala ehf., sem er dótturfélag Thule Investments, í jörðina Fell við Jökulsárlón. Félagið bauð hæst í jörðina, 1.520 milljónir króna.
Þetta kom fram á fundi sem lauk fyrir skömmu.
Að sögn Ólafs Björnssonar lögmanns, sem aðstoðaði sýslumann við öflun tilboða, áskildi hluti landeigenda sér rétt á fundinum til að bera ákvörðun sýslumanns undir dómstóla.
Málinu var frestað til klukkan 12 á hádegi föstudaginn 11. nóvember. Fram að þeim tíma hefur íslenska ríkið forkaupsrétt á jörðinni.
Frétt mbl.is: Hærra tilboð þarf í Fell samdægurs
Fjárfestingafélag í eigu Skúla G. Sigfússonar, eiganda Subway-veitingahúsakeðjunnar, hafði áður boðið best í jörðina, eða 1.170 milljónir króna.
Frétt mbl.is: Skúli í Subway með hæsta tilboð í Fell
Annað hæsta tilboðið á eftir því sem félagið í eigu Skúla bauð var endurnýjað tilboð frá Gísla Hjálmtýssyni hjá Thule Investments, upp á 1,1 milljarð króna.
Gísli hækkaði sig því um rúmar 400 milljónir króna með tilboðinu sem sýslumaður tók í dag.