Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra hefur sent nýkjörnum forseta Bandaríkjanna, Donald Trump, heillaóskabréf vegna sigurs hans í forsetakosningum í Bandaríkjunum í gær.
„Milli ríkjanna hefur ríkt mikil og góð vinátta um áratuga skeið og leggur forsætisráðherra í bréfi sínu áherslu á áframhaldandi gott samstarf og samvinnu, bæði tvíhliða og á alþjóðavettvangi,“ segir í tilkynningu á vef forsætisráðuneytisins.