Kona og karl eru í haldi lögreglu sökuð um að hafa kveikt í jólageitinni við IKEA við Kauptún í nótt. Þriðja einstaklingnum, sem er kona, var sleppt fljótlega eftir handtöku.
Þremenningarnir voru allir handteknir við Grímsbæ á Bústaðaveginum í Reykjavík í nótt.
Tilkynning um íkveikjuna barst slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um fjögurleytið og brann geitin nánast til kaldra kola. Starfsmaður öryggisgæslu á svæðinu brást fljótt og vel við. Fyrst reyndi hann að hindra för þeirra á svæðinu og þegar það gekk ekki veitti hann þeim eftirför frá IKEA og alla leið á Bústaðaveginn þar sem lögreglan sat fyrir þeim. Á meðan á þessu stóð var hann í sambandi við lögreglu símleiðis.
Þremenningarnir eru allir fullorðnir.
Ekki liggur fyrir hvort um sömu einstaklinga sé að ræða og þá sem reyndu að kveikja í geitinni fyrir helgina. Unnið er að því að taka skýrslu af parinu, en ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort því verði sleppt eða farið fram á gæsluvarðhald.
Frétt mbl.is: Öryggisvörður elti brennuvargana