Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var fámáll þegar hann kom á Bessastaði til fundar við forsetann nú fyrir stundu. Hann vildi ekkert tjá sig við fjölmiðla áður en fundurinn hófst. Fyrr í dag sleit hann stjórnarmyndunarviðræðum við Viðreisn og Bjarta framtíð.
Fundur Bjarna og Guðna Th. Jóhannessonar forseta átti að hefjast kl. 17 en honum seinkaði vegna þess að forsetinn sat fastur í umferð á leiðinni til Bessastaða. Hófst fundurinn um kl. 17.25.
Bjarni lofaði fjölmiðlum að tjá sig þegar fundinum með forsetanum lýkur.