Ferðamaður kærði nauðgun í nótt

Lögregla rannsakar málið.
Lögregla rannsakar málið. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Nauðgun var kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu seint í nótt. Samkvæmt heimildum mbl.is er fórnarlambið bandarísk stúlka sem var gestur á hóteli í miðbæ Reykjavíkur.

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn, staðfesti að nauðgun hefði verið kærð í samtali við mbl.is.

Grímur sagði að málið væri á algjöru frumstigi og verið væri að vinna í rannsókninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert