Norðmaður var í gær dæmdur í níu ára fangelsi fyrir aðild að smygli á miklu magni af amfetamíni. Málið er angi af stórfelldu fíkniefnasmygli sem fjölmargir Íslendingar tengdust.
Samkvæmt frétt Stavanger Aftenblad var maðurinn, sem er 45 ára, dæmdur fyrir að hafa ætlað að flytja inn til Noregs 21,25 kg af amfetamíni en hald var lagt á efnin í Kaupmannahöfn. Maðurinn neitaði sök og að sögn lögmanns hans, Kjell Myrland, verður dómnum áfrýjað.
Maðurinn var handtekinn 14. september 2012 í Stafanger. Daginn áður hafði danska lögreglan lagt hald á dópið í bíl í Haslev, úthverfi Kaupmannahafnar. Í kjölfarið var Norðmaðurinn handtekinn ásamt þremur Íslendingum.
RÚV greindi frá dómnum í gærkvöldi
Mbl.is hefur áður fjallað um málið en í september 2013 voru þrír Íslendingar og tveir Danir dæmdir í sex til tíu ára fangelsi fyrir umfangsmikið fíkniefnasmygl. Íslendingunum er jafnframt bannað að ferðast aftur til Danmerkur. Einn Íslendingur var dæmdur til vistunar á geðsjúkrahúsi. Þá þarf annar Íslendingur að gangast undir geðrannsókn og verður refsing yfir honum ákveðin að henni lokinni.
Meintur höfuðpaur smyglaranna, Guðmundur Ingi Þóroddsson, var dæmdur í 12 ára fangelsi í júní. Þá voru þeir Heimir Sigurðsson og Sturla Þórhallsson dæmdir í 10 ára fangelsi hvor í sama máli í ágúst sl.
Málið snýst smygl á um 70 kílóum af amfetamíni í þremur ferðum, en aðild mannanna að smyglinu var mismikil, allt frá smygli á 10-48 kílóum af amfetamíni.
Peter Baungaard, sem er 43 ára gamall, og sagður annar höfuðpaurinn í málinu, var dæmdur í 10 ára fangelsi. Íslendingurinn Ágúst Csillaq, sem er 21 árs gamall, hlaut einnig 10 ára dóm.
Mads Malmquist Rasmussen, sem er 29 ára Dani, var dæmdur í sjö ára fangelsi. Enzo Rinaldi, fertugur Íslendingur, og Erlingur Karlsson, 24 ára Íslendingur, voru dæmdir í sex ára fangelsi hvor.