Dulkóða og kaupa nýjar talstöðvar

Lögregla, slökkvilið og björgunarsveitir í landinu þurfa að búa við …
Lögregla, slökkvilið og björgunarsveitir í landinu þurfa að búa við örugg fjarskipti.

Talstöðvar embættis Ríkislögreglustjóra og Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu verða endurnýjaðar, vegna þess öryggisbrests í fjarskiptabúnaði embættanna sem komið hefur á daginn og varðar Tetra-fjarskiptakerfið.

Nýjar talstöðvar verða dulkóðaðar, þannig að enginn eigi að geta brotið sér leið inn í fjarskiptin.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri, að í sjúkraflutningum verði teknar upp nýjar fjarskiptavenjur, þannig að um talstöðvar fari aldrei persónulega rekjanlegar upplýsingar um sjúklinga.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert