Reykur og ólykt frá nýju kísilveri United Silicon í Helguvík hefur valdið miklu uppnámi í Reykjanesbæ undanfarna daga.
Heilsugæslunni og bæjaryfirvöldum í bænum hafa borist margar kvartanir vegna málsins sem ýmsir telja heilsufarslega ógn.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segist í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag ætla að fylgjast með stöðu og gangi mála í kísilverksmiðjunni. Dagný Alda Steinsdóttir, félagi í Náttúruverndarsamtökum Suðvesturlands, segir íbúa hafa fundið fyrir óþægindum frá verksmiðjunni í hálfan mánuð.