Klifraði milli svala á 4. hæð

Lögreglubílar og sjúkrabíll við Fellsmúla í dag.
Lögreglubílar og sjúkrabíll við Fellsmúla í dag. mbl.is

Maðurinn sem var haldið í gíslingu í íbúð á fjórðu hæð komst undan með því að klifra yfir á næstu svalir. Hann er ekki beinbrotinn en lemstraður, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. 

Tveir hafa verið handteknir vegna málsins.

Lögreglan staðfesti ekki hvort brotaþoli hafi verið búsettur í blokkinni. 

Rannsóknin málsins er á frumstigi. Rannsóknin beinist að því hvort um frelsissviptingu hafi verið að ræða.  

Frétt mbl.is: Manni haldið föngn­um

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert