Starfsemi endurvinnslustöðvarinnar Hringrásar við Klettagarða í Reykjavík hefur verið stöðvuð af heilbrigðiseftirliti borgarinnar. Er fyrirtækið sagt brjóta gegn starfsleyfi með því að geyma of mikið efni á vinnusvæði sínu. RÚV greindi fyrst frá þessu.
Í frétt RÚV segir að slökkviliðið og heilbrigðiseftirlitið hafi skoðað aðstæður hjá fyrirtækinu í gær og komist að þeirri niðurstöðu að það væri að brjóta reglur með því að hafa meira af brotajárni og öðrum efnum á vinnusvæði sínu en heimilt er.
Árný Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, segir í samtali við mbl.is að strax í morgun hafi verið gripið til ráðstafana, og fyrirtækinu bannað að taka á móti efni á svæði sitt.
Heilbrigðiseftirlitið hafði áður kannað aðstæður á athafnasvæði Hringrásar í októbermánuði.
„Við fórum í lok október og þá var þetta hér og þar aðeins yfir mörkunum. Svo á sér stað þessi bruni og við förum í eftirlit eftir það, og þá var ekki búið að bregðast við, heldur frekar búið að bæta í heldur en hitt. Því beitum við þessum aðgerðum gagnvart þeim núna.“
Þá segir hún að nú hvíli á fyrirtækinu að bæta úr þessum málum fyrir næstu skoðun eftirlitsins.
„Þeir fara ekki í gang fyrr en við leyfum það.“
Aðspurð segir hún staðsetningu starfseminnar ekki góða, en þar hafa orðið að minnsta kosti sex brunar á þessari öld.
„Hún er náttúrulega þarna nærri íbúðabyggð og öðrum fyrirtækjum. Þess vegna er starfsleyfið sem við veitum þeim með þessum takmörkunum, sem nú hefur verið brotið á.“
Eldur kviknaði á svæði Hringrásar í fyrrakvöld, eins og mbl.is greindi frá.
Frétt mbl.is: Eldur í Hringrás
Þá sagði Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins, í samtali við mbl.is í gær að meira hefði verið af efnivið á safnhaugunum sem þar eru, en leyfilegt er samkvæmt reglum.
Einnig hafi þá verið töluvert af hlutum eins og járni og gámum á athafnasvæði fyrir viðbragðsaðila, sem gerði starfi slökkviliðsins erfiðara um vik.
Ekki var heldur búið að setja upp hitamyndavélar á svæðinu sem greina óvenjulega hitamyndun og senda boð um hana. Samkvæmt áhættumati á brunavörnum á svæðinu, sem var gert fyrir nokkrum árum, var sagt til um að það þyrfti að koma upp slíkum vélum.
„Það má ekki gleyma því að það er hlutverk hvers rekstraraðila að halda sig innan þeirra marka sem talað er um,“ sagði Jón Viðar.