Ökumaður fólksbílsins sem fór út af veginum við Reynishverfisveg við Vík í Mýrdal í dag, virðist hafa gleymt að beygja inn á þjóðveginn og því keyrt fram af veginum. Talsverð þoka var á svæðinu en engin hálka.
Meiðsli ökumannsins voru minni háttar en farþegi bílsins var fluttur með þyrlu á bráðadeild i Fossvogi. Samkvæmt Sveini Rúnarssyni, yfirlögregluþjóni á Hvolsvelli, var ákveðið að flytja farþegann með þyrlu vegna mögulegrar hættu á bakmeiðslum. „Þetta er nokkuð langt ferðalag með bíl og því betra að taka enga áhættu,“ segir hann. Farþeginn er ekki í lífshættu.
Þeir sem voru í bílnum eru erlendir ferðamenn. Samkvæmt Sveini hafa þeir að öllum líkindum verið að skoða Reynisfjöru.
Frétt mbl.is: Bíll fór út af við Vík