„Stjórn foreldrafélags Réttarholtsskóla lýsir þungum áhyggjum af stöðu grunnskólakennara og nýgerðum kjarasamningum sem virðast ekki til þess fallnir að draga úr óánægju kennara með kjör sín.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn foreldrafélags Réttarholtsskóla.
Strax eftir kynningu samningsins sögðu átta kennarar í Réttarholtsskóla upp störfum. „Það er þyngra en tárum taki að horfa á bak slíkum framúrskarandi kennurum úr starfsliði skólans.“ Segir stjórnin félagsins um þau tíðindi.
Frétt mbl.is: „Sorgartíðindi fyrir skólann“
Stjórn foreldrafélagsins telur vandséð hvernig hægt verði að halda eðlilegu skólastarfi áfram þegar uppsögn þessara kennara tekur gildi í mars. „Því skóli er ekkert annað en mannauður – án hans er ekkert skólastarf!,“ segir í tilkynningunni og jafnframt bent á að: „Samninganefndir sveitarfélaganna virðast ekki átta sig á því hversu mikil verðmæti eru fólgin í slíkum mannauð þá gerum við, foreldrar og forráðamenn barna í Réttarholtsskóla, okkur grein fyrir því að slíkir kennarar eru ekki á hverju strái.“
Foreldrafélagið skorar á sveitarfélögin að skoða afstöðu sína til gildi menntunar og hækki laun kennara. „Aðeins þannig er hægt að forða grunnskólum landsins frá áframhaldandi flótta reyndra og hæfra kennara úr stéttinni.“