Geir Gestsson, hæstaréttarlögmaður og verjandi fyrrverandi starfsmanns byggingavöruverslunarinnar BYKO sem var sakfelldur í Hæstarétti Íslands, segir að til greina komi að kæra málið til Mannréttindadómstóls Evrópu.
Í viðtali í fréttum Stöðvar 2 sagði hann dóminn koma mjög á óvart, ekki síst í ljósi fyrri úrlausna samkeppnisyfirvalda. Grundvallaratriði sé að fyrirtækin skiptust á upplýsingum sem þegar voru opinberar.
Frétt mbl.is: Í fangelsi fyrir verðsamráð
Geir segir mikilvægt í samkeppni að kanna verð hjá samkeppnisaðilum. Dómur Hæstaréttar setji í uppnám hvernig slíkar verðkannanir séu framkvæmdar á Íslandi.
Frétt mbl.is: Kom á óvart og veldur vonbrigðum
Alls voru sex starfsmenn BYKO og Húsasmiðjunnar dæmdir í Hæstarétti fyrir refsivert verðsamráð í störfum sínum á árunum 2010 til 2011.
Mennirnir voru handteknir í mars árið 2011, en allir neituðu þeir sök í fyrstu.