Um 2.000 manns eru á boðunarlista til fangelsisvistar vegna ógreiddra sekta, en flestar eru vegna umferðarlagabrota.
Fangelsisdómar vegna umferðarlagabrota eru 2-6 dagar. Samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun afplánuðu 27 einstaklingar fangelsisvist vegna ógreiddra sekta árið 2014.
Ári síðar voru þeir 19 og í ár eru þeir 15, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.