Rúmlega 80 grunnskólakennarar á höfuðborgarsvæðinu sem sögðu upp í kjaradeilu kennara fyrir 1. desember hafa ekki dregið uppsögn sína til baka. Í Reykjanesbæ sögðu um 40 grunnskólakennara einnig upp sem er um 24% grunnskólakennara í öllu sveitarfélaginu. Þar hafa engar uppsagnir verið dregnar til baka.
Í vikunni munu bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ heimsækja alla sex grunnskóla bæjarins og ræða við kennara um hvernig best megi haga vinnu við að bæta framkvæmd vinnumats, ná sátt um starfsumhverfi kennara og létta álagi af þeim. Þetta kemur fram á vefsíðu Reykjanesbæjar.
Þeir átta kennarar við Réttarholtsskóla sem sögðu upp störfum eftir að nýr kjarasamningur var undirritaður hafa ekki dregið uppsagnir sínar til baka, að sögn skólastjóra.
Grunnskólakennarar og Samband íslenskra sveitarfélaga geta nú kosið um nýjan kjarasamning. Kjörstjórn hjá Kennarasambandinu heldur utan um kosninguna, sem fer fram á vefnum og geta grunnskólakennarar greitt atkvæði um samninginn til klukkan 16 mánudaginn 12. desember.