Hæstiréttur Íslands hafnaði í dag bótakröfu Ómars Ragnarssonar fjölmiðlamanns og átta annarra vegna handtöku þeirra í Gálgahrauni við Garðabæ fyrir rúmum þremur árum. Fólkið neitaði að verða við tilmælum lögreglu um að yfirgefa svæði í hrauninu þar sem fyrirhugaðar voru vegaframkvæmdir.
Staðfestir Hæstiréttur þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem komst að sömu niðurstöðu fyrir ári síðan.
Í dómi Hæstaréttar kom fram að í fyrri dómum réttarins hefði því verið slegið föstu að vegaframkvæmdirnar hefðu átt sér viðhlítandi lagastoð og hefði lögreglu því borið að ljá Vegagerðinni aðstoð til að tryggja framkvæmd þeirra og grípa til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar voru til þess að tryggja allsherjarreglu. Var talið ljóst af gögnum málsins að fólkið hefði ekki sinnt ítrekuðum fyrirmælum lögreglu um að víkja af vinnusvæðinu og hefði þannig leitast við að hindra lögmæta vegarlagningu.
Níumenningunum er gert að greiða íslenska ríkinu 100.000 krónur hver í málskostnað, samtals 900.000 krónur.