Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er búinn að kaupa jólatré handa fjölskyldunni sem mun standa í stofunni á Bessastöðum þessi jólin.
Frá þessu er sagt á Facebook-síðu Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík.
„Forseti Íslands og fjölskylda heiðruðu okkur í dag, renndu við og keyptu ofurfallegt jólatré til stuðnings Flugbjörgunarsveitinni. Enda sagði Guðni þau hafa gert það á hverjum jólum í nokkur ár! Kærar þakkir fyrir stuðninginn!“ segir í færslu sveitarinnar um kaup Guðna og fjölskyldu.