Gagnrýni ráðherra byggir á misskilningi

Fríða Björk Ingvarsdóttir rektor Listaháskóla Íslands.
Fríða Björk Ingvarsdóttir rektor Listaháskóla Íslands. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Gagnrýni fjármálaráðherra í kjölfar fjölmiðlaumræðu um óánægju forsvarsmanna ýmissa stofnanna vegna fjárlaganna er að mínu mati byggð á misskilningi hans, annars vegar á hlutverki fjölmiðla og hinsvegar á hlutverki forstöðumanna stofnanna,“ segir Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands, í fréttabréfi skólans sem kom út í gær.

Fríða Björk segir að í tilviki Listaháskólans er það fyrst og fremst árvekni fjölmiðla sem verður til þess að  málefni skólans rata í umfjöllun þeirra.

„Það er enda ekkert óeðlilegt við það að fjölmiðlar fjalli um málefni stofnanna sem ekki ná eyrum stjórnvalda, líkt og Bjarni heldur fram. Þvert á móti er það einmitt hlutverk fjölmiðla að upplýsa almenning um ástand innviða samfélagsins. Það er almenningur sem rekur bæði menntakerfið og heilbrigðiskerfið með sínu skattfé - og því þarf almenningur að vita hvaða áhrif áralangur niðurskurður hefur á lífshætti og framtíðarafkomu þeirra sjálfra og barna þeirra.

Hvað viðhorf ráðherrans til forstöðumanna stofnanna varðar, er það umhugsunarverð afstaða að höfða til samvisku þeirra gagnvart stjórnmálamönnum umfram aðra. Forsvarsmenn stofnanna bera fyrst og síðast ábyrgð gagnvart skattgreiðendum; þeim almenningi sem stofnanirnar þjóna – auk þess vitaskuld að sýna ráðdeild í starfsemi sinni. Ef athafnir og ákvarðanir stjórnmálamanna ganga í berhögg við það sem forsvarsmenn stofnanna telja nauðsynlegt til að svara grunnþörfum samfélagsins og varðar t.d. heilbrigði almennings og gæði háskólamenntunar, hljóta stofnanirnar að þurfa að láta í sér heyra. Á þessum lögmálum byggir lýðræðissamfélagið sína umræðuhefð og ákvarðanatöku – á samtali við almenning,“ skrifar Fríða Björk ennfremur en í gær sendu rektorar allra háskóla á landinu frá sér ályktun um alvarlega stöðu háskólanáms á Íslandi. 

Loforð um „tannfé“ enn óefnt tæpum 20 árum síðar

Fríða Björk bendir á í fréttabréfinu að þrátt fyrir að Listaháskólinn hafi að þessu sinni fengið hlutfallslega hæstu hækkunina eða um tæp 7,5% sé ljóst að slík aukning dugar ekki til að rétta af rekstrarhalla skólans, hvað þá til mjög brýnnar endurnýjunar innviða, tækjabúnaðar, hljóðfærakosts, eða húsbúnaðar, sem ekki hefur verið hægt að sinna í niðurskurði síðustu ára.

„Tæpast þarf að minna á húsnæðisvanda skólans í þessu sambandi, en ekki er heldur gert ráð fyrir lausnum þar á þessum fjárlögum og reyndar ekki í áætlun þeirri til 5 ára sem ríkisstjórnin hefur þegar kynnt. Augljóst er að þörf er á meiriháttar viðhorfsbreytingu af hálfu stjórnvalda í garð skólans til að skólinn fái það húsnæði sem hann honum var lofað sem „tannfé“ við stofnun hans fyrir hartnær 20 árum.

Að öllu óbreyttu er því framundan enn eitt erfitt ár þar sem ekki er hægt að fullnýta þá mikilvægu reynslu og þekkingu til uppbyggingar og nýsköpunar sem þó býr í starfsliði og nemendum Listaháskólans, þrátt fyrir niðurskurð undanfarinna ára.

Það er ljóst að í háskólakerfinu – líkt og í heilbrigðiskerfinu – er farið að sjá alvarlega á öllum innviðum. Afleiðing fjársveltisins sem nú spannar nánast heilan áratug og sá niðurskurður sem því fylgir getur ekki annað en bitnað á eðlilegri uppbyggingu háskólastarfs á öllu háskólastiginu. Afturför í starfi háskóla vegna fjárskorts er vitanlega grafalvarlegt mál, sem jafnframt hlýtur að vega að framtíðarmöguleikum þeirra kynslóða sem óhjákvæmilega þurfa að takast á við ögranir nýrrar aldar og bera ábyrgð á samkeppnishæfni Íslands til lengri tíma,“ segir í fréttabréfi rektors Listaháskóla Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert