125 milljónir króna til Sýrlands

Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra. mbl.is/Rax

Framlög til mannúðaraðstoðar í Sýrlandi verða hækkuð um 50 milljónir króna, samkvæmt samþykkt Alþingis í gærkvöldi. 

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra hefur þegar ákveðið að veita aukalega 23 milljónir króna til neyðaraðstoðar í landinu, meðal annars fyrir sálræna aðstoð flóttabarna frá Aleppo.

Þá hefur hún sömuleiðis ákveðið að ráðstafa 52 milljónum þegar í byrjun næsta árs til mannúðaraðstoðar í Sýrlandi, samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Samtals hefur neyðaraðstoð til Sýrlands því verið hækkuð á skömmum tíma um 125 milljónir.

Sýrlendingar, sem yfirgáfu Aleppo í gærdag, koma til flóttamannabúða fyrir …
Sýrlendingar, sem yfirgáfu Aleppo í gærdag, koma til flóttamannabúða fyrir utan borgina. AFP

Mistókst að koma hjálpargögnum til íbúanna

Í tilkynningu ráðuneytisins segir að mikil þörf sé fyrir þessa aðstoð í landinu. Um hálf milljón manna hafi látið lífið og um 11 milljónir manna flúið heimili sín vegna stríðsins í Sýrlandi. Talið sé þá að um 13,5 milljónir þurfi á mannúðaraðstoð að halda.

„Framlög Íslands fara að stærstum hluta til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNHCR, Barnahjálpar SÞ í Sýrlandi, UNICEF, og til Sýrlandssjóðs Samræmingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum, OCHA.“

Ástandið er sagt einna alvarlegast í Austur-Aleppo.

„Í fimm mánuði mistókust tilraunir til að koma hjálpargögnum til íbúanna, sem hafa búið við skort á mat, heilbrigðisþjónustu, hreinlæti og öðrum nauðsynjum, auk þess sem mjög kalt er á svæðinu á þessum árstíma.

Sameinuðu þjóðirnar áætluðu í vikunni að 39 þúsund borgarar hafi flúið frá Austur-Aleppó. Til að veita flóttafólkinu húsaskjól settu sýrlensk stjórnvöld upp nýjar flóttamannabúðir undir sinni stjórn í útjaðri Austur-Aleppó.“

Flúðu eftir að hafa leitað skjóls

Mannúðarstofnanir og borgarasamtök hafi þá reynt að veita aðstoð. Aðstæður þar séu hins vegar svo slæmar að flóttafólkið hafi flúið þaðan vegna kulda og vosbúðar nokkrum sólarhringum eftir að hafa leitað skjóls. Mikill meirihluti þeirra konur og börn, sjúkir og aldraðir.

„Framlög Íslands renna til aðstoðar við þetta fólk og aðra Sýrlendinga sem á aðstoð þurfa að halda, innan og utan heimalandsins,“ segir að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert