Hannar kápur metsölubóka

Ragnar Helgi Ólafsson hefur hannað yfir 500 kápur undanfarna tvo …
Ragnar Helgi Ólafsson hefur hannað yfir 500 kápur undanfarna tvo áratugi. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Þegar metsölulistar innlendra bóka eru skoðaðir má sjá að Ragnar Helgi Ólafsson, myndlistarmaður og skáld, hefur hannað kápur margra mest seldu bókanna og reyndar einnig kápur fjölda annarra bóka. Hann lítur samt ekki á sig sem metsöluhöfund og gerir greinarmun á hönnun og list.

„Ég lít á það að hanna bókakápur sem þjónustustarf og tek það alvarlega vegna þess að fólk hefur lagt mikla vinnu í skrifin og ég reyni því að gera mitt besta til að finna réttu kápurnar,“ segir hönnuðurinn og listamaðurinn.

Petsamo eftir Arnald Indriðason, Aflausn eftir Yrsu Sigurðardóttur, Drungi eftir Ragnar Jónasson, Jón lærði og náttúrur náttúrunnar eftir Viðar Hreinsson og Skegg Raspútins eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur eru dæmi um bækur, sem eru pakkaðar inn í kápu eftir Ragnar Helga, en hann hannaði kápur á milli 20 og 30 innlendar bækur á árinu og hefur sent frá sér yfir 500 bókakápur undanfarin 20 ár, bæði á bækur hér heima og erlendis. „Það er ábyrgðarhluti að hanna bækur en ég lít ekki svo á að ég sé persónulega í fimm efstu sætum bóksölulistans,“ segir hann.

Margar skissur á fyrstu stigum

Hönnuðurinn fær venjulega handrit eða vinnsluhandrit til þess að átta sig á efni sögunnar og kynna sér andrúmsloft frásagnarinnar áður en hann hefst handa. „Öðru gegnir með ævisögur og fræðibækur, því þá þarf ég ekki endilega að lesa allar bækurnar þótt gott sé að finna að minnsta kosti lyktina af stílnum og textanum,“ segir hann. Ragnar Helgi segist taka nótur við lesturinn og svo setjist hann niður með hvítt blað. Á fyrstu stigum geri hann margar skissur og beri þær undir forleggjarann eða höfundinn enda hafi hann ekki endilega lokaorðið um útlit verksins. Hann segir umræðu um „réttustu“ bókakápuna mikilvægari en um „fallegustu“ kápuna. Sú síðarnefnda sé vafasöm iðja.

„Kápan verður hluti af listaverkinu, bókinni sjálfri, og verður oft andlit verksins. Þess vegna verður hún að endurspegla skrifin og segja satt um verkið auk þess sem hún gegnir líka hlutverki auglýsingar og er því markaðstæki. Því getur oft myndast spenna í vinnunni, milli markaðssjónarmiða og fagurfræðilegri atriða, vinnan felst oft í því að finna jafnvægið á milli þessara þátta.“

Ragnar Helgi segir að bókarkápan gegni mikilvægu hlutverki til þess að staðsetja bókina fyrir lesandann, hvernig bók sé um að ræða. Að finna andblæ bókarinnar. „Stundum sér maður að skáldsaga fær ljóðabókarlega kápu eða að ævisaga fær skáldsögukápu. Þá staðsetur kaupandinn bókina ekki rétt í huga sér.“

Vel heppnaðar kápur

Skýr tákn og spenna milli þeirra er oft merki þess að vel hafi til tekist, að mati Ragnars Helga. Hann nefnir kápuna á Afhjúpun eftir Yrsu. Titillinn sé sterkur og kápan vinni skipulega á móti honum með því að mála yfir textann. „Þannig birtist sjálfkrafa hugmyndaleg spenna og þessi virkni finnst mér oft einkenna vel heppnaðar kápur.“

Fagurfræði er líka þáttur sem þarf að hafa í huga, vinna með letur og leturgerðir til þess að gera bókina áferðarfallega. „Mér finnst bestu kápurnar vera þær þar sem þessi hugmyndalega „dínamík“ er skýr og skörp,“ segir Ragnar Helgi.

Margar bókakápur skera sig úr. Ragnar Helgi segir að til dæmis hafi verið gaman að gera kápur á Heim til míns hjarta og Jarðnæði eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur, fyrir nokkrum árum. Stolið frá höfundi stafrófsins eftir Davíð Oddsson hafi opnað nýjar dyr. „Þá vann ég í fyrsta sinn einungis með letur og hugmyndalega nálgun frekar en hefðbundna myndskreytingu,“ segir hann og bætir við að kápan hafi þótt djörf á sínum tíma. Því hafi hún verið send til höfundarins til að fá samþykki hans og svarið hafi verið ánægjulegt og afdráttarlaust: „100%.“

Af nýútkomnum bókum tiltekur hann bók Viðars Hreinssonar um Jón lærða. „Ég sá um allt útlit bókarinnar á innsíðum og kápu, mikið verk og skemmtilegt.“ Eins hafi verið gaman að vinna við þrjár síðustu bækur Yrsu. „Ég held að það sé einsdæmi í heiminum að hönnuður fái að setja nafn metsöluhöfundar á kápuna og mála síðan yfir það.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert