Nauðganir langt yfir meðaltali

Kynferðisbrotum fjölgar en fíkniefnabrotum fækkar samkvæmt skýrslu lögreglu.
Kynferðisbrotum fjölgar en fíkniefnabrotum fækkar samkvæmt skýrslu lögreglu. Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Tilkynnt var um 126 nauðganir árið 2015 sem er um 40 prósent fjölgun miðað við meðaltal síðustu ára. Að jafnaði bárust 23 tilkynningar um kynferðisbrot í hverjum mánuði árið 2015 og fjölgar tilkynningum um 16 prósent á milli ára. Á sama tíma fækkar fíkniefnabrotum um 23 prósent á milli ára en þetta er í fyrsta sinn síðan 2009 sem það gerist.

Skýrsla lögreglu Afbrot á höfuðborgarsvæðinu 2015  fjallar um tíðni afbrota á höfuðborgarsvæðinu en markmiðið er meðal annars að halda árlega skrá yfir afbrot í umdæminu og mæla þróun í afbrotatíðni.

Þrátt fyrir fækkun skráðra fíkniefnabrota var lagt hald á meira magn fíkniefna árið 2015 miðað við árið 2014. Þar má helst nefna að um 24 sinnum meira magn af alsælu (e. ecstasy) var haldlagt árið 2015 en gert var árið 2014 og um það bil sex sinnum meira magn af amfetamíni og kókaíni.

Á heildina litið þá fjölgaði skráðum hegningarlagabrotum á höfuðborgarsvæðinu um tæplega 20 prósent á milli ára. Umferðarlagabrotum fjölgaði einnig, en skráð voru 28.665 brot á svæðinu árið 2015 sem er um 21 prósent fleiri brot en skráð voru að meðaltali síðustu þrjú ár á undan. 

Tilkynna brot í ríkari mæli

Af hegningarlagabrotum fjölgaði ofbeldisbrotum hlutfallslega mest á milli ára, eða um 35 prósent. Fjölgunin árið 2015 er samkvæmt lögreglu að mestu tilkomin vegna aukningar á minniháttar líkamsárásum þar sem nýtt verklag lögreglu í heimilisofbeldismálum tók formlega gildi í janúar 2015. Niðurstöður úr mati á þessum verklagsbreytingum sýna að ofbeldisbrotum hafi ekki fjölgað í samfélaginu heldur hafi þolendur í ríkari mæli tilkynnt ofbeldisbrotin til lögreglu.

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 5.126 tilkynningar um auðgunarbrot árið 2015 sem er fjölgun um tæplega átta prósent miðað við meðaltal fyrir árin 2012 til 2014. Tilkynnt auðgunarbrot voru um 55 prósent allra tilkynntra hegningarlagabrota. Tilkynnt var um 21 prósent fleiri innbrot árið 2015 miðað við árið 2014 og bárust flestar tilkynningar á milli klukkan 16 og 19 á föstudags- og laugardagskvöldum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert