Fannar ráðinn bæjarstjóri Grindavíkur

Fannar Jónasson.
Fannar Jónasson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Fannar Jónasson hefur verið ráðinn bæjarstjóri Grindavíkur út núverandi kjörtímabil, eða fram í maí 2018.

Gengið var frá ráðningu Fannars á bæjarstjórnarfundi í kvöld, að því er er kemur fram á vef Grindavíkurbæjar.

Hann tekur við starfinu af Róberti Ragnarssyni. 

Frétt mbl.is: Starfslokasamningur Róberts samþykktur

Fannar er 59 ára, kvæntur Hrafnhildi Kristjánsdóttur og eiga þau saman þrjú börn. Fannar er viðskiptafræðingur að mennt og einnig með MBA gráðu frá Háskóla Íslands.

Fannar hefur um 20 ára reynslu af sveitastjórnarmálum. Hann er Rangæingur að ætt og uppruna og sat hann þar í sveitarstjórn.

Hann starfaði einnig hjá Arion banka og forverum hans í um 10 ár, lengst af sem útibússtjóri.

Undanfarin ár hefur hann starfað sem fjármálastjóri hjá Fálkanum, samkvæmt vef Grindavíkurbæjar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert