„Hvar er Valli?“ í Kópavogi í dag

Ólöf Breiðfjörð, verkefnastjóri fræðslu- og kynningarmála hjá Listhúsi Kópavogsbæjar, með …
Ólöf Breiðfjörð, verkefnastjóri fræðslu- og kynningarmála hjá Listhúsi Kópavogsbæjar, með dagskrárbækling vorannar. Ljósmynd/Aðsend

Fyrstu fjölskyldustundir ársins í Menningarhúsunum í Kópavogi fara fram í dag. Annars vegar á Lindasafni kl. 11:30 þar sem spilastund með Spilavinum verður í boði og hins vegar á aðalsafni Bókasafnsins frá 13:00 til 16:00 en þar fer ratleikur fram.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá Listhúsi Kópavogsbæjar en „Hvar er Valli?” er yfirskrift ratleiksins sem ætlaður er allri fjölskyldunni. Valla er leitað meðal hvalabóka, ævintýrabóka Enid Blyton og raunar um allt bókasafnið.

Menningarhúsin í Kópavogi hafa staðið fyrir fjölskyldustundum á hverjum laugardegi frá því í haust en Gerðarsafn, Salurinn, Bókasafn Kópavogs og Náttúrufræðistofa Kópavogs skiptast á að bjóða upp á dagskrá sem er jafnfjölbreytt og grunnstarfsemi húsanna sjálfra.

Á vorönn verður náttúrulífsbíó, ýmiss konar listsmiðjur, legósmiðja, fjölbreyttir tónleikar, vísindasmiðja, fuglaskoðun og margt fleira spennandi í boði. Fjölskyldustundirnar eru gestum að kostnaðarlausu. Nýr dagskrárbæklingur liggur frammi í Menningarhúsunum en er einnig aðgengilegur á nýrri heimasíðu Kópavogsbæjar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert