Búið er að finna konuna sem var í sjónum við Dyrhólaey. Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi er verið að flytja hana á brott með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Konan fannst vestast í Reynisfjöru, skammt frá staðnum þar sem hún féll í sjóinn.
Lögreglan gat ekki gefið upplýsingar um líðan hennar.
Frétt mbl.is: Kona í sjónum við Dyrhólaey
Um er að ræða konu á fimmtugsaldri. Aðstæður á slysstað voru erfiðar fyrir björgunarsveitarmenn.
Björgunarsveitirnar voru kallaðar út um eittleytið í dag. Fyrst var talið að konan væri í sjónum í Reynisfjöru en síðar kom í ljós að hún var í Kirkjufjöru, við Dyrhólaey, vestan Reynisfjöru.
Uppfært kl. 14.40:
Að sögn svæðisstjóra Slysavarnarfélagsins Landsbjörg á svæði 16 er konan sem um ræðir frá Þýskalandi og var hún stödd á svæðinu ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum. Þau sakaði ekki.
Lögreglan er búin að girða af Reynisfjöru og verið er að athuga með Víkurfjöru líka, enda er brimið þarna mjög mikið, að sögn svæðisstjórans.
Lögreglan á Suðurlandi greinir frá því á Facebook að öll fjölskyldan hafi farið í sjóinn.