Konan sem lést við Dyrhólaey í gær, hafði farið ásamt eiginmanni sínum, syni á þrítugsaldri og 14 ára dóttur niður í svokallaða Kirkjufjöru austast á Dyrhólaey þegar stærri alda kom og felldi soninn og tók hann með sér út. Móðirin lenti einnig í briminu og fór út með soginu. Sonurinn komst að sjálfsdáðum í land.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir að rannsóknin á tildrögum slyssins standi enn yfir.
Tilkynningin er svohljóðandi:
„Rannsókn á tildrögum slyss í Dyrhólaey stendur enn yfir. Fyrir liggur að mikið brim og sog var við ströndina í gær og aldan breytileg þannig að á stundum náði hún tiltölulega skammt upp í fjöruna en síðan komu stærri fyllur sem lömdu á klettum eyjarinnar. Konan sem lést hafði farið ásamt eiginmanni sínum, syni á þrítugsaldri og 14 ára dóttur niður í svokallaða Kirkjufjöru austast á Dyrhólaey þegar stærri alda kemur og fellir soninn og tekur hann með sér út. Móðirin lendir einnig í briminu og fer út með soginu. Sonurinn kemst af sjálfsdáðum í land og ásamt föður sínum og systur í öruggt skjól. Öll fjölskyldan mun með einum eða öðrum hætti hafa lent í briminu en mis mikið þó.
Björgunarsveitir sjúkralið og lögregla voru kölluð í Reynisfjöru en þess ber að geta að skv. landakorti nær Reynisfjara allt frá Reynisfjalli vestur að Dyrhólaós. Um klukkustund eftir að tilkynning um slysið barst sást hvar konuna rak á land í fjöruna skammt austan við Dyrhólaós. Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar flutti hana á sjúkrahús í Reykjavík en þá höfðu lífgunartilraunir áhafnar þyrlunnar ekki borið árangur og var hún úrskurðuð látin fljótlega eftir komu á slysadeild.
Eiginmaður konunnar og börn voru flutt með sjúkrabifreið á slysadeild í Reykjavík en voru útskrifuð í gærkvöldi og aðstoðaði lögregla þau við að komast í náttstað. Þau njóta aðstoðar sendirðáðs síns.
Við Dyrhólaey eru skilti á þremur tungumálum auk íslensku sem vara m.a. við hættu af sjógangi. Göngustígar eru víðast afmarkaðir með keðjum.
Áfram er unnið að rannsókn málsins.“