SPRON-málið fyrir Hæstarétti í dag

Frá aðalmeðferð í SPRON-málinu.
Frá aðalmeðferð í SPRON-málinu. mbl.is/Styrmir Kári

Mál­flutn­ing­ur í SPRON-mál­inu svo­kallaða fer fram í Hæsta­rétti í dag, en í mál­inu voru stjórn og spari­sjóðsstjóri SPRON ákærð fyr­ir umboðssvik vegna tveggja millj­arða lán­veit­ing­ar til fé­lags­ins Ex­ista í lok sept­em­ber 2008. Í héraðsdómi voru all­ir hinir ákærðu aft­ur á móti sýknaðir þegar dæmt var í mál­inu í júní árið 2015.

Þau sem voru ákærð í mál­inu voru fyrr­ver­andi stjórn­ar­menn­irn­ir, þau Ari Berg­mann Ein­ars­son, Jó­hann Ásgeir Bald­urs, Mar­grét Guðmunds­dótt­ir og Rann­veig Rist, sem og fyrr­ver­andi spar­is­sjóðsstjóri SPRON, Guðmund­ur Örn Hauks­son.

Í dómi héraðsdóms sagði að ekk­ert benti til þess að stjórn­ar­menn­irn­ir hefðu látið hjá líða að afla upp­lýs­inga um greiðslu­getu eða eigna­stöðu fé­lags­ins við lán­veit­ing­una eins og sak­sókn­ari hélt fram.

Sér­stak­ur sak­sókn­ari taldi aft­ur á móti að hin ákærðu hefðu mis­notað aðstöðu sína og stefnt fé spari­sjóðsins í veru­lega hættu með lán­veit­ing­unni sem var samþykkt á fundi stjórn­ar spari­sjóðsins 30. sept­em­ber 2008. Var lánið veitt sem pen­inga­markaðslán án trygg­inga og án þess að mat væri lagt á greiðslu­getu og eigna­stöðu Ex­ista í sam­ræmi við út­lána­regl­ur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert
Loka