Björgunarsveitarfólk með leitarhunda hefur verið fengið til aðstoðar við leitina að Birnu Brjánsdóttur, sem týnd hefur verið síðan aðfaranótt laugardags. Voru leitarhundar fengnir til að lykta af fötum hennar heima hjá pabba Birnu til að hefja leitina. Þetta kemur fram á Facebook-síðu sem stofnuð hefur verið um leitina.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir Birnu Brjánsdóttur, sem er fædd árið 1996, en síðast er vitað um ferðir hennar í miðborg Reykjavíkur um kl. 5 aðfaranótt laugardags. Málið er í algjörum forgangi hjá lögreglu og unnið er úr öllum vísbendingum sem berast, að því er fram kom í tilkynningu frá lögreglu fyrr í kvöld.
Fjöldi fólks hefur aðstoðað við leitina samkvæmt því sem fram kemur á síðunni og hefur verið sett upp kort þar sem fólk getur merkt inn þar sem leitað hefur verið.
Birna er fædd árið 1996, er 170 cm há, um það bil 70 kg og með sítt rauðleitt hár. Birna var klædd í svartar gallabuxur, ljósgráa peysu, svartan flísjakka með hettu og svarta Dr. Martin-skó.
Allir þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Birnu frá því kl. 5 í gærmorgun eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000.
Frétt mbl.is: Málið í algjörum forgangi hjá lögreglunni
Frétt mbl.is: „Gerum allt sem hægt er“
Frétt mbl.is: Facebook-síða stofnuð vegna leitar
Frétt mbl.is: Allir geti tekið þátt í leitinni
Frétt mbl.is: Lögreglan leitar að Birnu Brjánsdóttur