Þúsundir komu saman í miðborg Reykjavíkur til að minnast Birnu Brjánsdóttur í dag. Athöfnin hófst við Laugaveg 116 og var gengið að Arnarhóli þar sem kveikt var á kertum. Þar var einnig mínútuþögn til að minnast hennar.
mbl.is fylgdist með í beinni útsendingu, en upptöku frá síðari hluta athafnarinnar ásamt viðtali við einn skipuleggjenda minningarathafnarinnar má sjá hér fyrir neðan.