Ræddu þróun öryggismála í Evrópu

Guðlaugur Þór Þórðarson og Jens Stoltenberg.
Guðlaugur Þór Þórðarson og Jens Stoltenberg. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Þróun öryggismála í Evrópu og tengslin vestur um haf var á meðal þess sem rætt var á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, sem fram fór í tengslum við fund varnarmálaráðherra bandalagsins sem stendur yfir í Brussel í dag og á morgun. 

Fram kemur í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að á fundinum hafi enn fremur verið rætt um aukinn varnarviðbúnað Atlantshafsbandalagsins og að Guðlaugur Þór hafi gert grein fyrir stefnu stjórnvalda í öryggis- og varnarmálum, auknum framlögum til bandalagsins og virkari þátttöku í störfum þess. Einnig hafi verið rætt um viðbúnað og eftirlit á Norður-Atlantshafi í ljósi vaxandi mikilvægis svæðisins.

Haft er eftir Guðlaugi Þór að öryggishorfur í Evrópu hafi því miður versnað á umliðnum árum og Atlantshafsbandalagið brugðist við með því að auka varnarviðbúnað sinn. „Hér verða öll ríki að leggja sitt af mörkum og það kom skýrt fram í máli framkvæmdastjóra að framlag Íslands á síðustu árum og áratugum skiptir máli og er mikils metið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert