Stefnt er að því að kynna niðurstöður endurupptökunefndar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu á föstudag. Úrskurðir er varða sex manneskjur, sem sakfelldar voru í málunum á sínum tíma, verða birtir kl. 14 þann dag.
Björn L. Bergsson, formaður endurupptökunefndar, vill ekki gefa upp fyrir fram hver niðurstaða nefndarinnar er en segir að ákvörðun hennar sé endanleg. Það þýði að ef nefndin synji málinu endurupptöku sé því lokið og ef hún mæli fyrir endurupptöku verði málsaðilar að beina því til viðkomandi dómstóls sem síðan taki afstöðu til málsins.
Björn segist fagna því að komið sé að þessum tímapunkti en nefndin hefur haft málið til umfjöllunar í á þriðja ár.
Um miðjan nóvember barst ábending frá manni í tengslum við hvarf Geirfinns Einarssonar sem ákveðið var að skoða nánar. Það frestaði kynningu á niðurstöðu nefndarinnar talsvert. Björn segir að sú ábending hafi þegar upp var staðið ekki haft nein áhrif á niðurstöðu nefndarinnar. Lögregla tók skýrslu af manninum fyrir áramót og var henni komið áfram til setts ríkissaksóknara í málinu og nefndarinnar. „Það sem út úr því kom gaf ekki tilefni til að [ábendingin] yrði skoðuð meira,“ segir Björn.
Davíð Þór Björgvinsson, settur ríkissaksóknari í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum, komst að þeirri niðurstöðu sumarið 2015 og haustið 2016 að rök væru fyrir hendi til endurupptöku á máli þeirra sem dæmdir voru.
Endurupptökunefnd hefur svo haft málið til skoðunar, þ.e. hvort taka ætti aftur upp mál sexmenninganna, þeirra Sævars Ciesielskis, Tryggva Rúnars Leifssonar, Alberts Klahn Skaftasonar, Guðjóns Skarphéðinssonar, Erlu Bolladóttur og Kristjáns Viðars Viðarssonar. Fólkið hafði ýmist sjálft eða aðstandendur þess beðið um endurupptöku fyrir utan Kristján Viðar. Settur ríkissaksóknari beindi því sjálfur til nefndarinnar að mál hans yrði einnig endurupptekið.
Skýrsla starfshóps um Guðmundar- og Geirfinnsmálið, sem var kynnt í mars 2013, er á meðal þeirra gagna sem lögð voru til grundvallar endurupptökubeiðninni. Í skýrslunni kom fram, að það væri hafið yfir allan skynsamlegan vafa að framburður allra þeirra sem hlutu dóm í málinu hefði verið óáreiðanlegur eða falskur. Veigamiklar ástæður væru fyrir endurupptöku.
Starfshópurinn sagði þrjár leiðir mögulegar. Ein var sú að ríkissaksóknari myndi meta hvort tilefni væri til endurupptöku.
Guðmundur Einarsson var fæddur 1956 og búsettur í Blesugróf í Reykjavík. Laugardagskvöldið 26. janúar 1974 yfirgaf Guðmundur, þá 18 ára gamall, heimili sitt og hugðist sækja dansleik í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði. Til hans sást aðfaranótt sunnudags en tilkynnt var um hvarf hans til lögreglunnar í Reykjavík þriðjudagskvöldið 29. janúar. Síðan hefur ekkert til hans spurst.
Geirfinnur Einarsson hvarf svo sporlaust að kvöldi 19. nóvember árið 1974. Mennirnir tengdust ekkert.
Kristján, Sævar og Tryggvi voru sakfelldir fyrir að hafa orðið Guðmundi að bana. Kristján og Sævar voru einnig dæmdir fyrir að bana Geirfinni. Tvímenningarnir voru dæmdir í ævilangt fangelsi. Guðjón hlaut tólf ára dóm. Auk þeirra fengu Erla Bolladóttir og Albert Klahn dóma fyrir minni sakir.
Björn segir að enginn blaðamannafundur verði haldinn til að kynna niðurstöðu endurupptökunefndarinnar heldur verði úrskurðirnir sex birtir á heimasíðu nefndarinnar.