Vesturlandsvegi við Lyngholt rétt sunnan við Hafnarfjall hefur verið lokað þar sem fjarlægja á strætisvagn sem fór út af þjóðveginum í gær. Lögregla beinir umferð um hjáleið um Dragháls. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að lokunin geti verið í hátt í tvo tíma.
Vagninn var á leið frá Borgarnesi áleiðis til Reykjavíkur í gær þegar hann fór út af veginum á tíunda tímanum. Nokkrir farþegar leituðu sér læknisaðstoðar eftir slysið. Talsverðar skemmdir urðu á vagninum þegar hann lenti ofan í skurði.