Einn af uppáhaldsdögum yngri kynslóðarinnar, öskudagurinn, er í dag og af því tilefni hafa börn og í sumum tilfellum fullorðnir klætt sig í búninga. Metnaðurinn er mikill hjá mörgum og það mátti sjá í Smáralindinni í dag þar sem krakkar sungu fyrir sælgæti.
mbl.is var á staðnum og myndaði furðuverurnar og fígúrurnar, fékk tóndæmi og söguna á bak við einhverja búninga.