Nafn konunnar sem lést

Morgunblaðið/Sverrir

Konan sem lést í umferðarslysi á Grindavíkurvegi aðfaranótt sunnudags hét Guðrún Pálsdóttir og var 45 ára gömul. Hún var til heimilis að Traðarbergi 3 í Hafnarfirði.

Slysið varð um 1,7 km norðan við mót Norðurljósavegar. Ekki er vitað nánar um tildrög slyssins önnur en þau að kon­an virðist hafa misst stjórn á bíln­um með þeim af­leiðing­um að hann valt út af veg­in­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert