„Það er mikill hugur í fólki,“ segir Svavar Pétur Eysteinsson, bóndi á Karlsstöðum í Berufirði og tónlistarmaður, um mótmæli sem eru fyrirhuguð síðar í dag vegna niðurskurðar í samgöngumálum.
Síðasta sunnudag mótmæltu íbúar á svæðinu niðurskurðinum með því að loka þjóðvegi 1, Berufjarðarvegi, í um tvær klukkustundir. Í dag verður sama vegi lokað en búist er við meiri umferð um veginn í þetta sinn.
„Núna seinnipartinn er aðeins þyngri umferð á flutningabílum og öðru og það verða kannski meiri óþægindi af þessari lokun,“ segir Svavar Pétur.
„Það er orðið dálítið yfirgengilegt þessi niðurskurður á samgöngum utan höfuðborgarsvæðisins. Það er ekki bara verið að mótmæla út af þessum vegakafla heldur niðurskurðinum í heild sinni. Það var lagt upp með ákveðna innviðauppbyggingu í kosningunum síðast og það er hægt og rólega verið að svíkja það allt saman,“ segir hann og bætir við að framkvæmdir við Berufjarðarveg hafi setið á hakanum í áratugi.
„Það var búið að ganga frá öllum samningum við landeigendur og það átti að fara í verkið. Við skiljum ekki að það sé ekki hægt að kýla á þetta.“
Svavar segir að ekki verði gefinn eftir millimetri í mótmælunum enda sé búið að „þenja mælinn í botn“ hjá íbúum Berufjarðar. Staðan verður rædd varðandi næstu skref að mótmælunum í dag loknum.
„Ég held að samgönguráðherra ætti að skella sér í bíltúr og heimsækja okkur og komast að því á eigin skinni hvers lags vitleysa þetta er að láta þennan veg liggja ókláraðan áratugum saman.“
Andrés Skúlason, oddviti Djúpavogshrepss, segir í samtali við Austurgluggann að Djúpavogsbúar eigi það inni að vera brjálaðir vegna frestunar á vegaframkvæmdum. Hann segist ekki ætla að halda aftur af mótmælendum og mun hvetja þá frekar en að letja, enda er hann sjálfur afar ósáttur við ákvörðun samgönguráðherra um að fresta framkvæmdunum.