Áhugamenn um samgöngumál á Vestfjörðum eru að undirbúa boðun íbúafundar með samgönguráðherra og þingmönnum.
Þeir eru að safna liði gegn ákvörðun ráðherrans um að fresta framkvæmdum við nýjan láglendisveg í Gufudalssveit sem lengi hefur verið barist fyrir.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að yfir þrjú þúsund manns höfðu í gærkvöldi skrifað undir áskorun til ríkisstjórnarinnar um að staðið yrði við áður boðaðar vegaframkvæmdir, áður en undirskriftalistinn var formlega opnaður.