Aðeins tveimur vikum eftir að Hæstiréttur ógilti niðurstöðu héraðsdóms í Marple-málinu og vísaði því aftur í hérað er það komið á dagskrá dómstólsins. Fyrsta fyrirtaka málsins að nýju fór fram í dag, en ekki þarf að þingfesta málið þar sem slíkt hafði áður verið gert.
Málið var upphaflega flutt í Héraðsdómi Reykjavíkur í september árið 2015 og féll dómur í október sama ár. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings, var dæmdur í sex mánaða fangelsi, Magnús Guðmundsson, fyrrum bankastjóri Kaupþings í Lúxemborg, var dæmdur í 18 mánaða fangelsi og Skúli Þorvaldsson fjárfestir var dæmdur í sex mánuði. Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrum fjármálastjóri bankans var sýknuð af öllum ákærum.
Ríkissaksóknari áfrýjaði málinu til Hæstaréttar, en síðar voru upptökubeiðnir gegn fjórum af þeim fimm félögum sem ákæran náði til dregnar til baka og nær málið því núna aðeins til félagsins Marple og þeirra einstaklinga sem voru ákærðir í málinu.
Vegna þessa er örlítil breyting á gögnum málsins og verður gagnaframlagning aftur tekin fyrir á fyrirtöku 27. mars.
Símon Sigvaldason héraðsdómari er dómsformaður málsins eins og við fyrri umferð þess í héraði. Auk hans voru tveir meðdómarar, meðal annars Ásgeir Brynjar Torfason, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hæstiréttur sagði í dómi sínum að Ásgeir brysti hæfi, einkum vegna ummæla og athafna á samfélagsmiðlum þar sem hann lýsti eindreginni afstöðu sinni um málefni bankans og stjórnenda hans.
Taldi Hæstiréttur óhjákvæmilegt að virtum atvikum málsins að líta svo á að umrædd tilvik gæfu tilefni til að draga með réttu í efa að meðdómsmaðurinn hefði verið óhlutdrægur í garð ákærðu við meðferð málsins í héraði, að því er fram kemur í úrskurði réttarins. Var málinu því vísað á ný í hérað.