Enn hefur ekkert spurst til Artur Jarmoszko, 26 ára, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir á fimmtudag. Síðast er vitað um ferðir Arturs í miðborg Reykjavíkur rétt fyrir miðnætti 1. mars síðastliðins.
Elwira Landowska, frænka hans, sagði í samtali við mbl.is nú í morgun að fjölskyldan sé vissulega áhyggjufull, en reyni þó að halda sinni rútínu. Tveir bræður Arturs eru einnig á Íslandi. „Þeir eru að reyna að láta áhyggjurnar ekki ná yfirhöndinni. Ég talaði við annan bróður hans í gær og hann sagðist bara hugsa jákvætt. Hann leyfði því ekki að hvarfla að sér að eitthvað hefði komið fyrir hann,“ segir Elwira. Sá bróðir hans sé þess fullviss að Artur hafi ekki skaðað sjálfan sig.
Hún segir Artur hafa tekið sér frí úr vinnu nokkru áður en hann hvarf og því hafi vinnuveitandi ekki saknað hans, þá sé hann ekki í daglegu sambandi við fjölskyldu sína og því hafi hún heldur ekki strax haft áhyggjur þó að ekki næðist í hann.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haldið fjölskyldunni vel upplýstri um leitina að Artur að sögn Elviru. „Þeir fengu aðra fartölvuna hans um fimmleytið í gær og hafa ekki náð að klára að lesa úr henni,“ segir hún og kveður lögreglu hafa gert mikið af því að ræða við vini hans og fjölskyldu.
Þá séu allir vinir Arturs meðvitaðir um að hans sé saknað og eins hafi verið auglýst eftir honum á pólska fréttavefnum Icelandnews. „Við erum síðan með tvo eða þrjá hópa á Facebook sem í eru vinir Arturs og vinir vina hans og aðrir sem gætu kannast við hann. Þeir eru allir í sambandi og vita að hans er saknað.“
Artur er pólskur en hefur verið búsettur á Íslandi um nokkurt skeið. Hann er 186 sm hár og með græn augu og stutt, dökkt hár. Hann er talinn vera klæddur í svarta úlpu eða mittisjakka, bláar gallabuxur og hvíta strigaskó.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.