Maðurinn sem lést við yfirborðsköfun í Silfru síðasta föstudag lést af hjartaáfalli. Þetta er bráðabirgðaniðurstaða krufningar. Engin merki eru um drukknun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Maðurinn var bandarískur ríkisborgari sem var fæddur árið 1951.
Laust fyrir 16 á föstudaginn barst Neyðarlínunni útkall en þá hafði manninum verið bjargað á land. Lögregla og sjúkralið fóru þá á vettvang og þyrla. Um mánuði áður hafði sambærilegt slys orðið í Silfru, en þar lést bandarískur karlmaður á sjötugsaldri.
Greint var frá því sama kvöld að búið væri að loka fyrir köfun í Silfru tímabundið og funduðu stjórnendur Þjóðgarðsins á Þingvöllum, umhverfisráðherra og forsvarsmenn Samgöngustofu saman um breytt verklag og kröfur fyrir köfun um helgina.
Meðal þess sem lagt er upp með er að hver leiðsögumaður sem í gjárnar fer má aðeins hafa með sér þrjá kafara í stað fjögurra áður og í yfirborðsköfun mega nú sex í stað átta fylgja þeim sem leiðsögn annast.
Opnað var fyrir köfun að nýju á mánudaginn eftir að reglurnar tóku gildi.