Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um níuleytið í morgun eftir að eldur kom upp á svölum húss við Langholtsveg.
Betur fór þó en á horfðist því húsráðandi hafði sjálfur náð að slökkva eldinn með handslökkvitæki þegar að slökkviliðsmenn komu á vettvang. Einhverjar skemmdir urðu á klæðningu, en húsið slapp við skemmdir að öðru leyti.