Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að veitingastaðnum Víetnam á Laugavegi vegna reyks sem var inni á staðnum. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er líklegast að kviknað hafi í sígarettu fyrir utan staðinn sem olli því að reykur kom inn í húsið.
Gengið var úr skugga um að ekki væri hætta á ferðum og fór slökkviliðið af staðnum þegar í ljós kom hver upptökin voru.