Búið er að koma þeim ökumönnum og farþegum sem lentu í vandræðum á Holtavörðuheiði í kvöld til byggða. Um 30 björgunarsveitarmenn á átta bílum komu um 25 til 35 manns til aðstoðar.
Skilja þurfti nokkra bíla eftir á heiðinni sem opnar ekki á ný fyrr en í sumar. Öxnadalsheiði er einnig lokuð og ljóst að sumarið kemur ekki alveg strax þótt sumarið gangi formlega í garð eftir klukkustund.