Biskup Íslands hefur ákveðið að skipa séra Brynju Vigdísi Þorsteinsdóttur í embætti prests í Njarðvíkurprestakalli Kjalarnessprófastsdæmi.
Þrír umsækjendur sóttu um embættið sem veitist frá 1. maí. Umsóknarfrestur rann út 5. apríl. Biskup skipar í embættið í samræmi við niðurstöðu kjörnefndar prestakallsins.