Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Rimantas Rimkus sem er 38 ára gamall. Hann er 187 sm á hæð, 74 kg og með dökkt, stutt hár. Fram kemur að ekkert hafi spurst til hans frá því um síðustu mánaðamót. Málið var tilkynnt lögreglu síðdegis í dag.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Rimantas eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 112. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.