Fjölskylda Shelagh D. Donovan, sem lést er hún varð fyrir hjólabát við Jökulsárlón árið 2015, krefur skipstjórann sem stýrði bátnum samtals um tæpar 44 milljónir króna í skaðabætur vegna slyssins. Þetta kemur fram í ákæru á hendur manninum sem mbl.is hefur undir höndum, en það er lögreglustjórinn á Suðurlandi sem ákærir mann.
Fjölskyldan gerir einkaréttarkröfu í málinu, en maðurinn hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi og er þess krafist að hann verði dæmdur til refsingar, sviptingu ökuréttar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Verði maðurinn fundir sekur um manndráp af gáleysi gæti hann átt yfir höfði sér sex ára fangelsi.
Eignmaðurinn krefst þess að ákærði verði dæmdur til að greiða honum tæpar 26 milljónir íslenskra króna og jafnframt tæplega 52 þúsund kanadískra dollara. Þá gera þrjú börn þeirra hjóna, á aldrinum 20 til 27 ára, einnig hvert og eitt kröfu um skaðabætur af hálfu mannsins. Frá rúmum fjórum milljónum króna upp í fimm og hálfa milljón.
Fjölskylda konunnar gerir einnig kröfu um að allur málskostnaður verði greiddur úr hendi ákærða.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Austurlands í dag, en maðurinn er ákærður fyrir hegningar- og umferðarlagabrot með því „að hafa, síðdegis fimmtudaginn 27. ágúst, ekið hjólabátnum Jaka SF-2223, sem er þiljað farþegaskip, afturábak frá farþegapalli og um malarplan norðan við þjónustubygginguna við Jökulsárlón í sveitarfélaginu Hornafirði, án nægjanlegrar aðgæslu þannig að hjólabáturinn hafnaði á gangandi vegfarandanum, Shelagh D. Donovan, f 13. Febrúar 1956, sem féll við og lenti undir hægra afturhjóli ökutækisins með þeim afleiðingum að hún hlaut fjöláverka og lést nær samstundis.“
Í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa, sem kom út á föstudag, kom fram að maðurinn hafði ekki réttindi til stýra bátnum. Þar segir að bakkmyndavél, sem er í öllum slíkum bátum sem sigla á Jökulsárlóni, hafi verið biluð í bátnum og svo hafi verið um nokkurt skeið. Þá hafi hvorki skipstjórinn né annar starfsmaður gengið úr skugga um að hættulaust væri að aka aftur á bak.
Hjónin voru í heimsókn á Íslandi ásamt yngsta syni sínum þegar slysið varð. Þau höfðu ferðast um með þyrlu og stóðu á plani við lónið og fylgdust með þyrlunni lenda þegar bátnum var bakkað á þau. Sonurinn náði að stökkva frá bátnum. Eiginmaður konunnar, Micahel Boyd, sagði í viðtali í kvöldfréttum RÚV í gær, að hann fyndi til með skipstjóranum, sem ók yfir konuna hans.
Fréttablaðið greindi frá því í dag að maðurinn starfar enn hjá ferðaþjónustufyrirtækinu sem gerir út bátinn og réttindi hans eru þau sömu og á slysdag.