Níu konur sem komu að starfi Stígamóta á síðustu árum hafa lýst yfir að reynsla þeirra af starfi Stígamóta sé sambærileg og sú sem Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir lýsti í pistli sínum um daginn.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem send var á fjölmiðla í dag.
Á mbl.is var greint frá færslu Helgu Baldvinsdóttur Bjargardóttur á Facebook. Helga rekur reynslu sína af því að starfa hjá Stígamótum, grasrótarsamtökum sem berjast gegn kynferðisofbeldi.
Helga sagði lausu starfi sínu hjá Samtökunum ’78 á dögunum eftir aðeins sex mánuði í starfi. Sagðist hún hafa átt í ofbeldissambandi við Stígamót.
Yfirlýsingin sem fjölmiðlum barst í dag ber yfirskriftina „Yfirlýsing frá níu konum sem starfað hafa á vettvangi Stígamóta“. Þar kemur fram að í kjölfar pistils Helgu Baldvinsdóttur Bjargardóttur vilji þær lýsa því yfir að þær trúi henni enda hafi þær allar sambærilega reynslu af því að starfa á vettvangi Stígamóta. Skorað er á framkvæmdahóp Stígamóta að taka á málinu af ábyrgð og fagmennsku.
Undir yfirlýsinguna skrifar Thelma Ásdísardóttir, fyrrverandi starfskona Stígamóta, fyrir hönd hópsins.