„Icelandair tekur á sig kostnað við þjálfun nýliða gegn samkomulagi um starf þeirra í ákveðinn tíma. Þetta er alþekkt í fluginu með flugmenn og fleiri stéttir,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við mbl.is.
Eins og áður kom fram skrifa nýir flugmenn hjá Icelandair upp á skuldabréf að andvirði 60 þúsund evrur, 7 milljónir íslenskra króna. Þar með skuldbinda þeir sig til þess að yfirgefa ekki Icelandair næstu þrjú árin, nema þeir greiði andvirði skuldabréfsins.
Guðjón segir að um sé að ræða samkomulag sem báðir aðilar skrifi undir í fullri sátt. „Þetta snýst um það að kjósi viðkomandi að hætta og nýta þjálfunina hjá öðrum þá taki sá á sig hluta af þessum kostnaði.“
Spurður að því hvort flugmennirnir skrifi undir samninginn í fullkominni sátt eða hvort þeir hafi val um eitthvað annað segir Guðjón þetta einfaldlega vera samkomulag. „Ef þú hefur störf hjá okkur þá ferðu í gegnum þjálfun sem Icelandair kostar gegn því að þú skuldbindir þig til að starfa í ákveðinn tíma.“
Guðjón segir Icelandair hafa byrjað á þessu samkomulagi fyrir stuttu síðan vegna hins öra vaxtar sem fyrirtækið er í. „ Við erum að ráða mikið af nýliðum og þar á meðal er að koma inn töluverður fjöldi af útlenskum flugmönnum. Þessir hlutir eru að breytast og eðlilegt að einn hlutur gangi yfir alla.“