Lést í umferðarslysi

Guðbjörg Benediktsdóttir.
Guðbjörg Benediktsdóttir.

Konan sem lést í um­ferðarslysi í Öxna­dal á fimmtudaginn hét Guðbjörg Benediktsdóttir. Guðbjörg, sem var 82 ára gömul, var bú­sett­ í Reykja­vík.

Seinni part fimmtudags lentu tvær fólks­bif­reiðar sam­an á hringveginum. Þrír voru flutt­ir á sjúkra­húsið á Ak­ur­eyri, þar sem ann­ar ökumaður­inn var úr­sk­urðaður lát­inn. Hinir tveir voru ekki tald­ir al­var­lega slasaðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert