Seðlabanki Íslands hefur hvorki lagalegar skyldur né heimildir til að annast áreiðanleikakannanir á viðskiptavinum sínum.
Þetta kemur fram í svari Seðlabankans við fyrirspurn Morgunblaðsins, þar sem spurt er hvað Seðlabankinn hafi gert til að ganga úr skugga um að fjárfestingarleið bankans hafi ekki verið notuð til peningaþvættis.
Í svari Seðlabankans, sem um er fjallað í Morgunblaðinu í dag, kemur einnig fram að Seðlabanki Íslands geti ekki rakið feril einstakra greiðslna utan íslenskrar lögsögu enda sé það hlutverk milligönguaðila.