Margvísleg sýkingarhætta er af völdum saurmengunar. Hættan ræðst aftur á móti af því hvaða sýklar, s.s. bakteríur, veirur og sníkjudýr, eru í megnuninni og í hversu miklu magni. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Landlæknir birti á vef sínum í dag.
Saurmengaður sjór getur þannig valdið sýkingu í húð og almennum veikindum, sérstaklega meltingarfæraeinkennum ef hann nær að menga matvæli og drykkjarvatn.
Sóttvarnalæknir hefur upplýst lækna á höfuðborgarsvæðinu um sýkingarhættuna og beðið þá um að tilkynna veikindi sem rekja má til mengunarinnar. Á vef Landlæknis er þó tekið fram að engin slík veikindi hafi borist til sóttvarnalæknis.
„Sóttvarnalæknir hvetur almenning til að vera á varðbergi gagnvart mengun í sjó og við strendur. Fari mengun fram úr viðmiðunarmörkum ætti ekki að stunda sjóböð að óþörfu. Gæta þarf að því að hlutir í fjörum geta einnig verið mengaðir og því þarf að handfjatla þá með varúð,“ segir á vef Landlæknis.
Tilkynningin á vef Landlæknis.