Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur biðst velvirðingar á þeirri mengun sem orðið hefur vegna bilunar í skólpdælustöð við Faxaskjól og losunar óhreinsaðs skólps í sjó í tengslum við viðgerðir vegna hennar.
Þetta kemur fram í bókun aukafundar stjórnar Orkuveitunnar sem haldinn var í dag vegna skólpmengunarmálsins. Fundurinn var haldinn að ósk borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Kjartans Magnússonar og Áslaugar Friðriksdóttur.
Í bókuninni, sem var samþykkt samhljóða á fundinum, kemur fram að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur telji að skoða þurfi fráveitukerfi Veitna og virkni þess í samræmi við vaxandi umhverfiskröfur, ekki síst við þær aðstæður þegar bilanir koma upp eða álag verður óeðlilega mikið.
Stjórnin lýsti ánægju með nýtt verklag Veitna varðandi samskipti við heilbrigðiseftirlit og aukna upplýsingagjöf til almennings. Þá telur stjórnin að upplýsa hefði átt almenning jafnóðum um þá skolplosun, sem átti sér stað í tengslum við umræddar viðgerðir. „Stjórnin vill jafnframt koma þökkum á framfæri við starfsmenn Veitna, sem hafa unnið að viðgerðum og strandhreinsun,“ segir í bókuninni.
Í síðustu viku fóru Veitur og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur yfir verklag varðandi upplýsingagjöf til almennings þegar losa þarf skólp í sjó vegna viðhalds eða bilana. Þar kom fram að upplýsingagjöf bæði til fjölmiðla og almennings verði aukin og fjölmiðlar jafnframt upplýstir um framgang verksins.
Veitur munu halda áfram viðgerð á neyðarloku í skólpdælustöð við Faxaskjól á morgun, 18. júlí. Vegna viðgerðanna þarf að opna neyðarlúgur í dælustöðvum bæði við Skeljanes og Faxaskjól og verður óhreinsuðu skólpi hleypt í sjóinn. Neyðarlúgur hafa verið lokaðar undanfarna daga en vonast er til þess að með viðgerðinni á morgun verði hægt að klára málið.